Upphitunarsvæði

Upplifðu ólgandi, eldheitt æðakerfi Íslands í gagnvirku sýningarrými í anddyrinu áður en aðalsýningin hefst. Á um það bil 30 mínútum leiða stuttmyndir, gagnvirkt eldfjallakort og jarðskjálftamælir þig í gegnum jarðfræði eyjunnar. Einnig er þar að finna ægilegan myndagíg fyrir sjálfutökur.

01Eldfjallaglugginn

Skjárinn í móttökunni er glugginn okkar að eldstöðvunum á Reykjanesi og sýnir hann samfellt efni frá nýlegum eldhræringum. Þegar nýtt gos hefst, þá skiptum við yfir í beina útsendingu.

02Fjórar stuttmyndir

Sýningarrýmið veitir innsýn í ægilega krafta eldgosa í gegnum fjórar glænýjar stuttmyndir. Hver mynd varpar einstöku ljósi á þá kraftmiklu jarðvirkni sem mótar landslag Íslands á hverjum degi.

03Sögukort

Þegar ýtt er á hnapp lifnar sögukortið við og eldsprungurnar undir Íslandi lýsast upp. Kortið sýnir einnig nákvæma staðsetningu allra 247 skráðra eldgosa frá landnámi.

04Jarðskjálftamælir

Fylgstu með jarðskjálftavirkni á Íslandi síðustu 48 klukkustundirnar og sjáðu nákvæmlega hversu langur tími hefur liðið frá síðasta eldgosi.

05Myndagígur

Prófaðu Myndagíginn – gagnvirkt myndlistaverk þar sem kraftmiklar myndir af eldgosum skapa bakgrunn fyrir sjálfutökur. Þannig getur þú deilt mikilfengleika íslenskrar náttúru beint með fylgjendum þínum.
A magma river